Dagana 11.-15. ágúst býður Myndlistaskólinn í Reykjavík upp á áhugavert námskeið á Melrakkasléttu rétt sunnan við Heimskautsbaug en þetta er í fjórða sinn sem námskeiðið er haldið, með örlítið breyttu sniði hverju sinni.
Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri en markmiðið er að kynna myndlistina sem verkfæri til rannsóknar og skoðunar. Viðfangsefnið verður hin harðbýla og töfrandi náttúra svæðisins. Þátttakendur fá einnig innsýn í menningu, sögu og samfélag sem enn blómstrar á þessu hrjóstruga en hlunnindaríka svæði.
Sjónum verður jöfnum höndum beint að gróðri jarðar, fjörunni og hinum fjölmörgu, ísöltu lónum sem einkenna svæðið. Fuglalífi, smádýrum og plöntum verður gefinn gaumur og fylgst með því hvernig fiskurinn hegðar sér á ólíkum tímum sólarhringsins. Þeir sem hafa áhuga á veiðiskap munu því ennfremur finna ýmislegt við sitt hæfi.
Farið verður í vettvangsferðir bæði lengri og styttri og unnið verður í og með náttúrunni. Vettvangsferðirnar eru bæði hugsaðar sem tilraun til tengslamyndunar við svæðið og söfnun hughrifa og viðfangsefna.
Leiðbeinendur verða myndlistarmennirnir Sigtryggur Bjarni Baldvinsson og Þórarinn Blöndal (sem jafnframt eru dellumenn um silungsveiði). Einnig mun Snorri Freyr Hilmarsson teiknari, leikmyndahönnuður og staðarhaldari Óskarsbragga leiðbeina eftir atvikum. Matráður er Signý Jónsdóttir vöruhönnuður en hún hefur rannsakað og unnið með mat í hönnun sinni og er framúrskarandi kokkur. Hún hefur meðal annars unnið merkilega hönnunarrannsókn á melgresi.
Námskeiðið hefst að morgni mánudagsins 11. ágúst og því lýkur með veislu að kvöldi föstudagsins 15. ágúst. Innifalið í verðinu er hádegis- og kvöldverður í fimm daga.
Alla jafnan er kennt daglega frá klukkan 9 til 15. Ef aðstæður leyfa verður farið í veiðiferðir eftir að kennslu líkur en þær eru þó ekki hluti af skipulagðri dagskrá.
Bækistöð og vinnuaðstaða verður í gamla síldarbragganum, Óskarsstöð, nýrri listamiðstöð á Raufarhöfn. Þetta er sögufrægt hús, byggt árið 1949 af Óskari Halldórssyni „Íslandsbersa“ og eitt af síðustu húsum sem flutt var með seglskipi frá Noregi en húsið hefur verið gert upp á undanförnum árum.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Rannsóknastöðina Rif og Heimsenda, menningarfélag Óskarsbragga á Raufarhöfn með tilstyrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra.