Vefnaður

Verklegt námskeið þar sem nemendur fá tækifæri til þess að kynnast möguleikum vefnaðar. Markmið námskeiðisins er að nemendur öðlist þá þekkingu og færni sem þarf til þess að setja upp í vefstól og vefa eftir ýmsum aðferðum.

Í upphafi námskeiðisins verður farið yfir bindifræði, hvernig á að lesa uppskriftir, fara eftir leiðbeiningum og áætla garnmagn fyrir uppistöðu í vefnað. Nemendur setja síðan sjálfir upp í vefstól, undir handleiðslu kennara, og í framhaldi af því fá þeir tækifæri til þess að spreyta sig á hinum ýmsu aðferðum sem miðillinn hefur upp á að bjóða.

Nemendum er gert að útvega sér efni sjálfir en munu hafa aðgang að vefstólnum á skrifstofutíma skólans á tímabili námskeiðsins.

Námskeiðið er 5 vikur.

Efniskaup: Nemendum er gert að útvega sér efni sjálfir en munu hafa aðgang að vefstólnum á skrifstofutíma skólans á tímabili námskeiðsins.
Hámarksfjöldi nemenda: 8
Kennslustundir: 37
Einingar: 2
IMG 2517

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0601 1. júní, 2026 – 1. júlí, 2026 1. júní, 2026 1. júlí, 2026 17:45-21:00 Thelma Kristín Stefánsdóttir 120.000 kr.