Vélprjón

Á þessu inngangsnámskeiði að einborða prjónavél munu nemendur læra að fitja upp á og fella af, sem og útaukningar, úrtökur og styttar umferðir. Áhersla verður lögð á einfaldar aðferðir til þess að leika sér með prjónflötinn. Nemendur læra að prjóna sokk og grunnatriði þegar kemur að því að reikna út prjónfestu. Mælt er með að koma með eigið garn en sumt garn textíldeildarinnar verður hægt að nota til þess að prófa sig áfram og fá tilfinningu fyrir aðferðinni.

Námskeiðið er 4 vikur.

Efniskaup: Mælt er með að koma með eigið garn en sumt garn textíldeildarinnar verður hægt að nota til þess að prófa sig áfram og fá tilfinningu fyrir aðferðinni.
Hámarksfjöldi nemenda: 8
Velprjon

Rauðarárstígur 10

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
N0525 25. maí, 2026 – 15. júní, 2026 Mánudagur 25. maí, 2026 15. júní, 2026 Mánudagur 17:45-21:00 Álfrún Pálmadóttir 60.000 kr.