Inntökuskilyrði
- Inntökuskilyrði á teiknibraut er stúdentspróf af listnámsbraut eða sambærilegt nám. Umsækjendur sækja um í gegnum umsóknarvef þar sem fram kemur námsferill og tilgangur umsækjenda með náminu.
- Með umsókninni þarf einnig að skila inn möppu (portfolio) með sýnishornum af eigin verkum.
- Að auki skal skila inn skissubók.
- Umsækjendur gætu verið kallaðir í viðtal ef inntökunefnd telur ástæðu til.
Mikilvægar dagsetningar
Tekið verður næst við umsóknum um nám á teiknibraut vorið 2022 fyrir skólaárið 2022-2023. Athugið að tekið er við nemendum í þessa námsleið annað hvert ár þar sem einungis einn hópur er við nám á hverjum tíma. Áhugasömum er þó bent á að hafa samband við deildarstjóra sem annast viðkomandi námsbraut sem skoðar hvert einstakt tilvik í ljósi fyrra náms og reynslu.
Við lokaval úr umsóknum eru eftirfarandi þættir skoðaðir:
- Teikniþáttur: þ.e. teiknifærni, raunveruleg viðfangsefni s.s. módel og umhverfisteikningar og ímynduð viðfangsefni.
- Frásagnarþáttur: þ.e. frásagnamáttur teikninganna/viðfangsefna, myndskreytingar, teiknimyndasögur, animation og persónuleg túlkun eða rödd/sérstaða í úrlausnum.
- Fjölbreytni: þ.e. fjölbreytt viðfangsefni, fjölbreytni í efni og aðferðum, s.s. karaktersköpun, animation, teiknimyndasögur.
- Þekking: Grunnþekking í formskyn, litaskyn, efnistök, myndmál og listrænir hæfileikar og inntak.
- Annað: Forsendur sem koma fram í greinargerð, námsferill og/eða starfsreynsla.
Nánari upplýsingar
Sjáðu kynningarmyndband hér!
Nánari upplýsingar veitir Anna Cynthia Leplar, deildarstjóri, teikning@mir.is.
Fyrir umsækjendur sem vilja fá námsráðgjöf er hægt að senda póst á namsrad@mir.is.