Í ljósi óvissuástands verður skólagjöldum vorannar 2021 skipt í þrennt:
1) febrúar 2) mars 3) apríl og maí.
Sendir verða út greiðsluseðlar með eindaga í byrjun hvers tímabils. Ef upp kemur sú staða að skólanum verði gert að loka húsum sínum og gera hlé á starfsemi sinni fást skólagjöld hafins tímabils ekki endurgreidd.
Nemendum sem greiða með korti er bent á að hafa samband í tölvupósti á mir@mir.is eða í síma 551-1990 ef til lokunar kemur.