Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest um nám á myndlistarbraut til kl 17.00 þann 15. júní.
Myndlistarbraut býður upp á eins árs listnám fyrir nemendur sem lokið hafa starfsbraut framhaldsskóla eða sambærilegu námi.
Um er að ræða hálft nám en kennt verður fyrir hádegi alla virka daga.
Nemendur öðlast grundvallarþekkingu í undirstöðugreinum myndlistar og áhersla er lögð á frjótt sköpunarferli og persónulegt myndmál. Nemendur fá jafnframt góða innsýn í listasögu og starfsumhverfi myndlistar.
Nánari upplýsingar um umsóknarferlið má finna hér.