Myndlist vinnustofa

Vinnustofan er hugsuð sérstaklega fyrir nemendur sem hafa útskrifast af starfsbrautum og fjölnámsbrautum framhaldsskólana og þau sem þurfa góðan stuðning við þátttöku á námskeiðum.

Vinnustofan er annars vegar hugsuð sem sjálfstæð vinna undir handleiðslu kennara fyrir hóp sem á það sammerkt að hafa fengist töluvert við listiðkun og jafnvel mótað persónulegan stíl. Hins vegar er boðið uppá kennslu í tækni, efni og aðferðum fyrir nýja nemendur. Vinnustofan er því sérsniðin að þörfum hvers og eins og um leið hvatning til þess að þátttakendur haldi listiðkun sinni áfram og víkki áhugasvið sitt og færni í myndlist.

Námskeiðið er 12 vikur.

Hámarksfjöldi nemenda: 14
Kennslustundir: 52
Undafari:

Hafa lokið starfsbraut eða fjölnámsbraut framhaldsskólana.

Efniskaup:

Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.

Skólafrí:

◌ Vetrarleyfi 26.-30. október. Skólastarf hefst aftur 31. október.

31357832 1642492655804024 5290694560941342720 O

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1 7. september, 2023 – 30. nóvember, 2023 Fimmtudagur 7. september, 2023 30. nóvember, 2023 Fimmtudagur 12:15-15:00 Lee Lorenzo og Kristinn Harðarson 97.200 kr.