Risoprentari

Á námskeiðinu kynnast þátttakendur möguleikum rísóprentvélararinnar og læra að undirbúa verk til prentunar í einum, tveimur eða fleiri litum. Rísótæknin er um sumt lík silkiþrykkstækninni og býður upp á blæbrigðaríka útfærslu mynda þar sem margt getur komið skemmtilega á óvart.

Þátttakendur eru beðnir um að koma með teikningar, ljósmyndir og önnur tvívíð verk sem þeir vilja nota sem grunn að myndum til að prenta. Að mestu verður þó unnið með það sem þátttakendur búa til á staðnum. Teiknikunnátta er kostur en ekki skilyrði fyrir áhugaverðum rísóprentverkum.

Fyrsta daginn verður prentvélin og tæknin kynnt til sögunnar, fjölmörg dæmi um rísóprent sýnd og þátttakendur prenta einföld verk til að öðlast skilning á ferlinu.

Næstu daga verða unnin fjölbreytt verkefni að stærð, umfangi og fjölda lita. Sum þeirra verða ákveðin og leidd af kennara, önnur að frumkvæði þátttakenda sjálfra. Tilraunamennska, opinn hugur og sveigjanleiki leiða vinnuna áfram.

Hámarksfjöldi nemenda: 12
Screenshot 2021 02 25 at 14 opt

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
103 30. maí, 2023 – 2. júní, 2023 30. maí, 2023 2. júní, 2023 17:00-20:15 Bjarni Hinriksson 44.000 kr.