Myndskreytingar

Námskeiðið miðar að því að nemendur styrkist í færni sinni og sjái möguleika í myndlýsingu ólíkra texta. Í fyrri helmingnum verða lögð fram stutt verkefni þar sem áhersla er lögð á karaktersköpun, mynduppbyggingu, textaskilning og aðferð. Í seinni hlutanum munu nemendur vinna myndlýsingu við texta að eigin vali en það gæti til dæmis verið sena úr uppáhaldsbók, eplakökuuppskrift ömmu, ljóðið sem var falið í gamalli stílabók eða betrumbætt útfærsla á Ikealeiðbeiningum.

Námskeiðið er 6 vikur. Námslok miðast við 80 % mætingu.

Efniskaup: Blýantar (2H, HB, 2B, 4B, 6B), yddari, strokleður og hnoðleður.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 26
Einingar: 1
Image1

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
106 23. október, 2023 – 4. desember, 2023 Mánudagur 23. október, 2023 4. desember, 2023 Mánudagur 17:45-21:00 Hlíf Una Bárudóttir 64.000 kr.