Teikning 1: Fjarvídd og mælingar

Kennd eru undirstöðuatriði hlutateikningar, formgreining og skygging. Hlutateikningin byggir á gegnsæisteikningu þar sem uppbygging hlutanna er skoðuð. Unnið er með blæbrigði línunnar, mismunandi áherslur og grátónaskala blýantsins.

Í byrjun námskeiðs eru frumformin teiknuð í samsíða vídd og form þeirra dregin fram með skyggingu. Kennd eru undirstöðuatriði í fjarvídd og rýmisteikningu. Á síðari hluta námskeiðsins er hlutfallamæling æfð. Teiknaðir verða einfaldir hlutir með áherslu á form og skyggingu (yfirfærsla á þrívíðum viðfangsefnum á tvívíðan flöt pappírsins). Fjallað er um myndbyggingu og kynntir eru ýmsir listamenn sem tengjast efninu hverju sinni.

Námskeiðið er 12 vikur. Námslok miðast við 80% mætingu.

Efniskaup: Blýantar (2H, HB, 2B, 4B, 6B), yddari, strokleður og hnoðleður.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
Fyrirkomulag:

Námskeið er á framhaldsskólastigi og gildir til vals sem hluti af Þrennu.

MIR Evening Class 8

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
103 19. september, 2023 – 5. desember, 2023 Þriðjudagur 19. september, 2023 5. desember, 2023 Þriðjudagur 17:45-21:00 Eygló Harðardóttir 108.000 kr.