Í þessum áfanga verður lögð áhersla á grunnþætti módelteikningarinnar, hlutföll, línu og form og tengingu þessara grunnþátta við efni og tækni. Nemendur þjálfast í notkun á blýanti, kolum, bleki og fleiru. Sýnd verða dæmi úr listasögunni og úr myndskreyttum bókum. Módeli verður stillt upp í mislangan tíma sem ræðst aðallega af efnisnotkuninni hverju sinni. Bæði verða teiknaðar langar stöður og hraðskissur. Einnig glímt við hreyfingu og stundum verður skuggi og birta viðfangsefni í teikningunni.
Kennslan er persónubundin og miðar út frá hæfni og þörfum hvers nemenda.
Námskeiðið er 6 vikur. Námslok miðast við 80% mætingu.