Frjáls módelteikning

Stutt og hnitmiðað námskeið í frjálsri módelteikningu þar sem teiknað verður með mismunandi tækni og óhefðbundnum aðferðum. Markmiðið er að nemandinn nái að losa um ótta við að teikna rétt módel og finni frelsi í að teikna með lifandi fyrirmynd. Teiknað verður á pappír með mismundandi tækjum og tólum og tilraunakenndar aðferðir kynntar. Æskilegt er að nemendur hafi einhverja reynslu í módelteikningu og anatómíu.

Námskeiðið er fjögur skipti, frá þriðjudegi til föstudags milli kl. 17 og 20:15.

Efniskaup: Kolblýantar, kol, blýantar (2B til 6B), túss, yddari, strokleður og hnoðleður.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Copy of myndlistaskolinn 68

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Tímasetning Kennari Verð Skráning
101 30. maí, 2023 – 2. júní, 2023 30. maí, 2023 2. júní, 2023 17:00-20:15 Kristín Gunnlaugsdóttir 44.000 kr.