Málaralist vinnustofa

Ætlað nemendum með töluverða reynslu af málaralistinni sem geta eða vilja vinna sjálfstætt í listsköpun sinni en jafnframt eiga þess kost að leita leiðsagnar. Ekki eru lögð fyrir sérstök verkefni en kennari leiðbeinir nemendum í þeirra sjálfsprottnu viðfangsefnum. Viðvera kennara er jafnframt áætluð 50% af tímunum. Fjallað um tæknileg atriði s.s. liti og í blöndunarefni, grunna og fleira. Inn í kennsluna verða fléttuð dæmi og fróðleikur úr listasögunni eftir því sem við á.

Námskeiðið er 12 vikur. Námslok miðast við 80% mætingu.

Efniskaup: Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
Skólafrí:

◌ Vetrarleyfi 26.-30. október. Skólastarf hefst aftur 31. október.

Img 3324

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
207 8. september, 2023 – 1. desember, 2023 Föstudagur 8. september, 2023 1. desember, 2023 Föstudagur 12:45-16:00 Valgarður Gunnarsson 76.000 kr.