Leirkerarennsla hádegistímar
Númer: | 307 |
Kennsludagur: | miðvikudagur |
Kennslutími: | 12:00 – 15:15 |
Upphafsdagur: | Miðvikudagur, 10. Febrúar, 2021 |
Lokadagur: | Miðvikudagur, 05. Maí, 2021 |
Kennari: | Þuríður Ósk Smáradóttir |
Lýsing á námskeiði: | Á námskeiðinu er kennt á rafknúinn rennibekk. Áhersla er lögð á verkþjálfun en námið fer einnig fram með sýnikennslu. Unnið með margvísleg form og formskyn nemandans þjálfað. Hver nemandi fær til afnota rennibekk. Kynnt er notkun glerunga og leiðbeint um hverjir henta best renndum hlutum. Nemandinn kynnist heildstæðu ferli þar sem farið er í forvinnu, samsetningar á renndum hlutum og afrennslu. Við leggjum okkur fram um að skapa stemmningu sem likist helst vinnu á keramikverkstæði þar sem hver nemandi vinnur að sínum verkefnum sem skipulögð eru í samráði við kennara. Mikið er lagt uppúr því að nemandinn fái tilfinningu fyrir leirnum sem efni og efnivið og nái að finna fyrir framförum hjá sjálfum sér. Námslok miðast við 80% mætingu. |
Verð: | 95800 |
Efniskaup: | Allt efni innifalið |
Kennslustaður: | Hringbraut 121 |
Hámarksfjöldi nemenda: | 11 |
Kennslustundir: | 52, 12 vikur |
Einingar: | 2 |
Frí: | 29. mars til 6. apríl Páskafrí 22. apríl Sumardagurinn fyrsti 1. maí |
