Leirrennsla framhald

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa náð góðum tökum á leirrennslu en vilja bæta færni sína og öðlast frekari skilning á ferlinu. Kennari leggur verkefni fyrir í hverjum tíma til að hvetja nemendur að fara nýjar leiðir og mælir með að nemendur notist við skissubók. Hópurinn fylgist að yfir námskeiðið og kynnist heildstæðu ferli, allt frá rennslu til brennslu, meðhöndlun glerunga og endurnýtingu á leirnum. Unnið verður með margvísleg form og formskyn nemandans þjálfað. Mikið er lagt uppúr því að nemandinn fái tilfinningu fyrir leirnum sem efni og efnivið og nái að finna fyrir framförum hjá sjálfum sér.

Námskeiðið er 8 vikur. Námslok miðast við 80% mætingu.

Efniskaup: Allt efni innifalið en nemendur þurfa að nota sín eigin verkfæri. Verkfærasett fæst á skrifstofu skólans á 4000 kr.
Hámarksfjöldi nemenda: 11
Kennslustundir: 35
Einingar: 1
403 H12 Módun C Leirrennsla 6

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
304 23. ágúst, 2023 – 11. október, 2023 Miðvikudagur 23. ágúst, 2023 11. október, 2023 Miðvikudagur 17:45-21:00 Þuríður Ósk Smáradóttir 98.000 kr.
311 18. október, 2023 – 6. desember, 2023 Miðvikudagur 18. október, 2023 6. desember, 2023 Miðvikudagur 17:45-21:00 Þuríður Ósk Smáradóttir 98.000 kr.