Arkitektúr og hönnun

Á námskeiðinu eru tvívíð og þrívíð verkefni unnin frá hugmynd til útfærslu. Nemendur kynnast ýmsum aðferðum við myndbyggingu og velta fyrir sér stærð og hlutföllum, endurtekningu, takti og mynstri. Nemendur gera tilraunir í tilbúnu rými (líkani) og skoða bæði geómetrísk og lífræn form og kanna samspil þeirra við aðra þætti. Hönnunarsagan verður skoðuð í tengslum við verkefnin og kannað verður hvernig unnið er með rými í samtímamyndlist, hönnun og arkitektúr. Námskeiðið hentar t.d. vel þeim sem hyggja á nám í hönnun eða arkitektúr.

Námskeiðið er 12 vikur. Námslok miðast við 80% mætingu.

Efniskaup: Nemendur koma með þau efni og áhöld sem þeir eiga og eru vanir að nota. Frekari efniskaup í samráði við kennara.
Hámarksfjöldi nemenda: 12
Kennslustundir: 52
Einingar: 2
Fyrirkomulag:

Námskeið er á framhaldsskólastigi og gildir til vals sem hluti af Þrennu.

Form rymi honnun00

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
501 20. september, 2023 – 6. desember, 2023 Miðvikudagur 20. september, 2023 6. desember, 2023 Miðvikudagur 17:45-21:00 Jóhanna Ásgeirsdóttir og Bjarki Gunnar Halldórsson 109.000 kr.