6-9 ára: Leirmótun

Á námskeiðinu er farið í gegnum helstu aðferðir við leirmótun og nemendur fá að kynnast efninu og verkfærum. Nemendur munu útbúa ævintýralega hluti í fjölbreyttum verkefnum og takast á við grundvallaratriði sjónlista, formi, lit, ljósi og skugga. Markmiðið er að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu, jafnframt því að þroska almenn vinnubrögð og tilfinningu fyrir formi og efni.

Námskeið er 8 vikur.

Viðbótarkostnaður: 17.700 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 8
Kennslustundir: 19
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

69leir00

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
69106 24. ágúst, 2023 – 12. október, 2023 Fimmtudagur 24. ágúst, 2023 12. október, 2023 Fimmtudagur 15:15-17:00 Þóra Breiðfjörð 59.000 kr.
69107 19. október, 2023 – 7. desember, 2023 Fimmtudagur 19. október, 2023 7. desember, 2023 Fimmtudagur 15:15-17:00 Þóra Breiðfjörð 59.000 kr.