10-12 ára: Teikning og blönduð tækni

Á námskeiðinu er unnið með ýmsar ólíkar aðferðir í teikningu og málun og gerðar tilraunir með blandaða tækni. Verkefnin sem lögð eru fyrir byggja á grundvallaratriðum sjónlista í tvívídd og þrívídd; formi, lit, áferð, ljósi og skugga. Áhersla er lögð á að veita nemendum svigrúm til tilrauna, virkja áhugasvið þeirra og sköpunargleði. Jafnframt er listasagan skoðuð til að auka skilning á þróun myndlistar og til innblásturs.

Námskeið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 19.500 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 10
Kennslustundir: 36
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

MYNDL RVK 22 NAMSKEID 02460

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1012107 13. september, 2023 – 29. nóvember, 2023 Miðvikudagur 13. september, 2023 29. nóvember, 2023 Miðvikudagur 15:00-17:15 Lovísa Lóa Sigurðarsóttir 65.000 kr.
1012101 18. september, 2023 – 4. desember, 2023 Mánudagur 18. september, 2023 4. desember, 2023 Mánudagur 15:00-17:15 Selma Hreggviðsdóttir 65.000 kr.