10-12 ára: Myndasögur

Á námskeiðinu er farið í handritsgerð, myndbyggingu, sköpun persóna, áhöld og efni. Nemendur læra að skapa svipbrigði og að gæða persónuna lífi og nota til þess mismunandi miðla við listsköpunina. Gaman fyrir krakka sem vilja bæta sig í teikningu og að skapa hugmyndir. Farið verður yfir feril myndasögunnar og ýmsir teiknarar kynntir fyrir nemendum.

Námskeið er 12 vikur.

Viðbótarkostnaður: 19.500 kr. viðbótargjald vegna lögheimilis utan Reykjavíkur.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 18
Kennslustundir: 36
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Myndasogur

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
1012108 14. september, 2023 – 30. nóvember, 2023 Fimmtudagur 14. september, 2023 30. nóvember, 2023 Fimmtudagur 15:00-17:15 Dagur Pétursson Pinos og Guðbrandur Magnússon 65.000 kr.