6-9 ára: Bókalist

Það er áhugavert að uppgötva bókaformið á nýjan hátt og gera það að sínu með texta eða teikningum og litum. Á námskeiðinu skoðum við ólíkar gerðir bóka, pop up bækur, fansínur og bókverk sem eru listaverk. Við rannsökum og umbreytum hugmyndum okkar af bókarforminu á leikin hátt þar sem eitt leiðir að öðru og raðast upp í persónulegt bókverk. Við lærum hefðbundna leið að líma bókarkjöl og allt þetta, skoðum ólíkan efnivið til bókagerðar eins og pappír, speglapappír, málmfólíur og gagnsæjar litafólíur, veljum það sem gefur okkur innblástur og látum innblásturinn leiða okkur áfram.

Viðbótarkostnaður: 14.500 kr.-

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 8
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Skólafrí:

◌ Vetrarleyfi 23.-25. febrúar
◌ Páskafrí 3. -11. apríl

MYNDL RVK 22 NAMSKEID 02456

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
109 13. janúar, 2023 – 14. apríl, 2023 Föstudagur 13. janúar, 2023 14. apríl, 2023 Föstudagur 15:15-17:00 Guðrún Benónýsdóttir 48.200 kr.