4-5 ára: Myndlist

Á námskeiðinu eru unnin fjölbreytt verkefni með áherslu á skapandi hugsun, persónulega tjáningu og á að þroska vinnubrögð einstaklingsins. Mismunandi miðlar eru teknir fyrir og nemendur fá að kynnast mismunandi efnum. Unnin verða tvívíddar og þrívíddar verk þar sem áhersla verður lögð á grundvallaratriði sjónlista; form, liti, áferð og lýsingu.

Viðbótarkostnaður: 14.500 kr.-

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 6
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Skólafrí:

◌ Vetrarleyfi 23.-25. febrúar

◌ Páskafrí 3. -11. apríl

IMG 8116

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
101 12. janúar, 2023 – 13. apríl, 2023 Fimmtudagur 12. janúar, 2023 13. apríl, 2023 Fimmtudagur 15:15-17:00 Berglind Erna Tryggvadóttir og Tara Njála Ingvarsdóttir 48.200 kr.
102 14. janúar, 2023 – 15. apríl, 2023 Laugardagur 14. janúar, 2023 15. apríl, 2023 Laugardagur 10:15-12:00 Berglind Erna Tryggvadóttir og Tara Njála Ingvarsdóttir 48.200 kr.
103 14. janúar, 2023 – 15. apríl, 2023 Laugardagur 14. janúar, 2023 15. apríl, 2023 Laugardagur 12:45-14:30 Berglind Erna Tryggvadóttir og Tara Njála Ingvarsdóttir 48.200 kr.