13-16 ára Teikning, málun og blönduð tækni
Númer: | 1316107 |
Skráning og greiðsla: | Fara á skráningarvef |
Kennsludagur: | Fimmtudagur |
Kennslutími: | 17:45 – 20:10 |
Upphafsdagur: | Fimmtudagur, 10. Janúar, 2019 |
Lokadagur: | Fimmtudagur, 04. Apríl, 2019 |
Kennari: | Una Björg |
Lýsing á námskeiði: | Á þessu námskeiði verður unnið með ýmsar ólíkar aðferðir í teikningu og málun, bæði hefðbundnar og nýstárlegar og gerðar tilraunir með blandaða tækni. Farið verður í litafræði, myndbyggingu, hugmyndavinnu og skissugerð og við nýtum mismunandi tækni, efni og verkfæri. Við gerum ýmsar æfingar sem miða sérstaklega að því að auka færni í teikningu og efnismeðferð. Samhliða skoðum við líka listasöguna til að auka skilning á þróun myndlistar og til innblásturs. Unnið verður með vatnsliti, akrílliti, blek og önnur efni. Áhersla verður lögð á að veita nemendum svigrúm til tilrauna, virkja áhugasvið þeirra og sköpunargleði. |
Verð: | 56500 |
Viðbótarkostnaður: | 16900 |
Efniskaup: | Allt efni innifalið. Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur. |
Kennslustaður: | Hringbraut 121 |
Hámarksfjöldi nemenda: | 12 |
Kennslustundir: | 44 kennslustundir, 13 vikur |
Frí: | 23. til 26. febrúar - Vetrarfrí 15. apríl til 22. apríl - Páskafrí 25. apríl - Sumardagurinn fyrsti |
