10-12 ára: Teikning og blönduð tækni

Á námskeiðinu er unnið með ýmsar ólíkar aðferðir í teikningu og málun og gerðar tilraunir með blandaða tækni. Verkefnin sem lögð eru fyrir byggja á grundvallaratriðum sjónlista í tvívídd og þrívídd; formi, lit, áferð, ljósi og skugga. Áhersla er lögð á að veita nemendum svigrúm til tilrauna, virkja áhugasvið þeirra og sköpunargleði. Jafnframt er listasagan skoðuð til að auka skilning á þróun myndlistar og til innblásturs.

Viðbótarkostnaður: 16.700 kr.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 10
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

SkólafrÍ:

◌ Vetrarleyfi 23.-25. febrúar
◌ Páskafrí 3. -11. apríl

IMG 0395

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
101 16. janúar, 2023 – 17. apríl, 2023 Mánudagur 16. janúar, 2023 17. apríl, 2023 Mánudagur 15:00-17:15 Selma Hreggviðsdóttir 55.700 kr.
110 18. janúar, 2023 – 12. apríl, 2023 Miðvikudagur 18. janúar, 2023 12. apríl, 2023 Miðvikudagur 15:00-17:15 Þórunn Dís Halldórsdóttir 55.700 kr.

Miðberg

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
201 18. janúar, 2023 – 12. apríl, 2023 Miðvikudagur 18. janúar, 2023 12. apríl, 2023 Miðvikudagur 15:00-17:15 Brynhildur Þorgeirsdóttir 55.700 kr.