10-12 ára: Myndasögur

Á námskeiðinu er farið í handritsgerð, myndbyggingu, sköpun persóna, áhöld og efni. Nemendur læra að skapa svipbrigði og að gæða persónuna lífi og nota til þess mismunandi miðla við listsköpunina. Gaman fyrir krakka sem vilja bæta sig í teikningu og að skapa hugmyndir. Farið verður yfir feril myndasögunnar og ýmsir teiknarar kynntir fyrir nemendum.

Viðbótarkostnaður: 16.700 kr.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 18
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Skólafrí:

◌ Vetrarleyfi 23.-25. febrúar
◌ Páskafrí 3. -11. apríl

MYNDL RVK 22 NAMSKEID 02630

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
109 12. janúar, 2023 – 13. apríl, 2023 Fimmtudagur 12. janúar, 2023 13. apríl, 2023 Fimmtudagur 15:00-17:15 Dagur Pétursson Pinos og Guðbrandur Magnússon 55.700 kr.