10-12 ára: Manga teikning

Á námskeiðinu læra nemendur að þróa persónu, frá hugmynd í klárað verk. Nemendur þjálfast í að teikna persónu frá mismunandi sjónarhornum og í mismunandi stöðum og að túlka svipbrigði þeirra. Lögð verður áhersla á „Manga“ teiknistílinn, mismunandi einkenni hans og mikilvægi persónusköpunar.

Viðbótarkostnaður: 16.700 kr.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 18
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Skólafrí:

◌ Vetrarleyfi 23.-25. febrúar
◌ Páskafrí 3. -11. apríl

MYNDL RVK 22 NAMSKEID 02635

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
104 17. janúar, 2023 – 18. apríl, 2023 Þriðjudagur 17. janúar, 2023 18. apríl, 2023 Þriðjudagur 15:00-17:15 Dagur Pétursson Pinos og Guðbrandur Magnússon 55.700 kr.
108 18. janúar, 2023 – 12. apríl, 2023 Miðvikudagur 18. janúar, 2023 12. apríl, 2023 Miðvikudagur 15:00-17:15 Dagur Pétursson Pinos og Guðbrandur Magnússon 55.700 kr.