10-12 ára: Leirrennsla og mótun

Á námskeiðinu þjálfast nemendur í rennslu og mótun leirs. Nemendur munu renna nytjahluti ásamt því að gera óhlutbundnar tilraunir. Markmiðið er að þjálfa sjónræna athygli, örva skapandi hugsun og persónulega tjáningu, jafnframt því að þroska almenn vinnubrögð og tilfinningu fyrir formi og efni. Leitast er við að kveikja áhuga á myndgerð og formhugsun í víðara samhengi, m.a. gegnum listasögu.

Viðbótarkostnaður: 16.700 kr.

Reykjavíkurborg styrkir starfsemi barna- og unglingadeildar. Stuðningurinn einskorðast við börn og ungmenni með lögheimili í Reykjavík. Börn og ungmenni búsett í öðrum sveitarfélögum greiða af þeim sökum 30% hærri námskeiðsgjöld en börn búsett í Reykjavík. Sú upphæð er innheimt sérstaklega.

Sum önnur sveitarfélög hafa niðurgreitt námskeið fyrir börn og ungt fólk. Hafa þarf samband við viðkomandi sveitarfélag.

Mörg starfsgreina- og stéttarfélög niðurgreiða nám við skólann.
Efniskaup: Allt efni innifalið.
Hámarksfjöldi nemenda: 10
Kaffitími:

Ætlast er til að börnin hafi með sér einhvern léttan bita / hollt nesti, en fari ekki að kaupa í kaffitímanum. Athygli er vakin á því að Myndlistaskólinn er hnetufrír og því má ekki taka með sér nesti sem inniheldur hnetur.

Skólafrí:

◌ Vetrarleyfi 23.-25. febrúar
◌ Páskafrí 3. -11. apríl

Copy of Z9 A7431

Hringbraut 121

Hópur Hefst Lýkur Kennsludagur Tímasetning Kennari Verð Skráning
105 17. janúar, 2023 – 18. apríl, 2023 Þriðjudagur 17. janúar, 2023 18. apríl, 2023 Þriðjudagur 15:00-17:15 Þóra Breiðfjörð 55.700 kr.
111 14. janúar, 2023 – 15. apríl, 2023 Laugardagur 14. janúar, 2023 15. apríl, 2023 Laugardagur 10:15-12:30 Ragnheiður I Margeirsdóttir 55.700 kr.